Saturday, August 4, 2012

Kjóll á heimasætuna :)

Fyrir nokkru tók ég þátt í svokölluðu "prjónaswapi" sem fyrir þá sem ekki vita gengur út á það að ég sendi einhverri/einhverjum lítinn pakka með prjóna tengdum hlutum í og í staðin fæ ég pakka frá einhverjum öðrum sem einnig tók þátt í swapinu :) En allavega fékk ég í pakkanum mínum tvær dokkur af þessu yndislega garni sem heitir ROWAN Pure wool. Það er svo mjúkt og fallegt að það lá við að ég sæti og klappaði því :) En þegar ég fékk garnið, þá kom ekkert annað til greina en að prjóna kjól á stelpuna mína úr þessu. Ég var strax ákveðin í því hvernig kjóllinn ætti að líta út, og þar sem ég var svona rosalega ákvaðin í því, þá ákvað ég að prjóna kjólinn eins alveg eins og ég vildi hafa hann. En þar sem ég avar nokkuð viss um að ég fyndi alveg örugglega ekki svoleiðis uppskrift, þá sá ég ekkert annað í stöðunni en að búa til uppskriftina sjálf :)

Það endaði svo með þessum kjól á skottuna. Ég var bara nokkuð ánægð með útkomuna og hún er svo himinlifandi yfir nýja kjólnum sínum að hún neitar að fara úr honum ;)

Ég lenti reyndar í smá veseni, því að dokkurnar mínar tvær kláruðust og einabúðin hérna á íslandi sem selur þetta garn er Storkurinn. En Storkurinn átti garnið ekki til og þær vissu ekki hvenær garnið væri væntanlegt. En ég er samt svo heppin að ég á systir sem býr í noregi og við fundum þetta garn í netverslun þar í landi og hún gat pantað fyrir mig eina dokku sem reyndar var ekki með sama lotunúmeri en litanúmerið var það sama. Hún sendi mér dokkuna og sem betur fer, þá var liturinn nákvæmlega eins, þrátt fyrir ða lotunúmerið væri annað :) Takk fyrir það systa :)

En hér koma allavega nokkrar myndir af kjólnum, eða skokknum sem er eiginlega réttara nafn fyrir hann.

Ég er ekki enn búin að ákveða nafnið á kjólnum sjálfum, en var að láta mér detta í hug annaðhvort "Fjóla" þar sem hann er svo fallega fjólublár eða "Mar" þar sem skottan sem ber kjólinn heitir að seinna nafni Maren.

Hvað finnst ykkur um þau nöfn ? Hafið þið einhverja hugmynd af öðru nafni á kjólinn ?






8 comments:

Anna Lisa said...

kjòllinn er ædislegur hjà ther!!! Kvedja systa :)

Fríða :) said...

Takk fyrir :)

mamma said...

Flottur kjóll hjá þér og fín hönnun :)

Fríða :) said...

Takk fyrir, mamma :)

Guðrún Ben said...

Mjög flottur :)

Fríða :) said...

Takk fyrir Guðrún :)

Guðrún Helga said...

Ég datt fyrir algjöra tilviljun hérna inn, og það var einmitt ég sem sendi þér þetta garn! (Held ég.. fékkstu ekki handmálað kerti með líka?)
Hefði átt að kaupa 3 dokkur greinilega! hehe
En þessi kjóll er æðislegur, og skottan litla líka! :)

Fríða :) said...

Takk fyrir :) En gaman að þú skulir sjá kjólinn Guðrún Helga :) Jú, ég fékk líka handmálað kerti með :) En það vantaði alveg lygilega lítið af garninu, ég átti eiginlega bara eftir að gera böndin :) En það reddaðist :)